553-3038

553-3038

Kristilegur leikskóli, sjálfstætt starfandi og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi.

Námskrá

  •  

Söngur

  •  

Dagatal​

  •  

Svona vinnum við

Í leikskólanum fer fram markvisst uppeldis- og fræðslustarf sem unnið er í gegnum leikinn. Fastir liðir í leikskólastarfinu eru:

Einu sinni í viku er unnið í hópum með fá börn í einu. Þar er unnið markvisst með málörvun og  fínhreyfingar sem fléttast inn í þemavinnuna. Markmiðið er að efla alhliða þroska barnanna og félagslega færni þeirra í hóp. En einnig að börnin læri að taka tillit og bíða eftir því að röðin komi að þeim. Elstu börnin vinna sérstök verkefni sem eiga að undirbúa þau undir grunnskólann.

Einu sinni í viku er samsöngur þar sem öll börnin á leikskólanum hittast og syngja saman. Skipast deildarnar á að skipuleggja og halda utan um stundirnar. Auk þess er mikið sungið á hverri deild.

Reglulega eru börnin frædd um kristna trú. Þá eru þau frædd um einhverja frásögu úr Biblíunni, spjallað um hana og stundum unnin verkefni. Sungnir eru kristilegir söngvar og börnin læra bænir og minnisvers.

Börnin læra þulur, kvæði, gamlar vísur og æfa söng. Elstu börnin fara reglulega í Fríðuhús, sem er dagvistarheimili fyrir minnissjúka. Slíkar stundir eru ómetanlegar og tengja saman kynslóðirnar.

Útivera er a.m.k. einu sinni á dag eða oftar ef veður er gott og börnin vilja vera meira úti. Í útiverunni fá börnin tækifæri til að efla grófhreyfingarnar og öðlast betri líkamsvitund.

Börnin eru frædd um náttúruna og sköpun Guðs með því að fara með þeim um nánasta umhverfi og fræða þau um það sem fyrir augu ber. Húsdýragarðurinn og Grasagarðurinn eru mikið notaðir í þá fræðslu. Efniviður í margs konar skapandi starf er líka gjarnan sóttur þangað.

Valið er einu sinni í viku. Ákveðin svæði eru í boði með fyrirfram ákveðnum viðfangsefnum . Börnin dvelja um eina klst. á svæðinu í senn. Markmiðið er að efla sjálfstæði barnanna og koma til móts við sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Einnig að þjálfa þau í að taka ákvörðun og læra að standa við hana.

Í listagarði er unnið með myndsköpun af ýmsu tagi m.a. í samræmi við þema vetrarins. Auk þess er börnunum kennt að meðhöndla efni og aðferðir kynntar fyrir þeim. Efniviður er sýnilegur og börnin ákveða sjálf hvað þau búa til. Lögð er áhersla á ferlið við sköpunina hér og nú, en ekki hvernig afraksturinn er.

Okkar Markmið

  • Að ala upp sjálfstæða, ábyrga einstaklinga sem elska og virða hvern annan og elska náungann eins og sjálfan sig.
  • Að miðla menningararfinum og stuðla að persónulegum þroska barnanna.
Nemendur
0
Starfsmen
0

DEILDIR

Hvað segja foreldar um Vinagarð?

“Á Vinagarði starfar duglegt, metnaðarfullt og einstaklega umhyggjusamt fólk sem auðgar með nærveru sinni, hlýju og fagmennsku líf þeirra barna sem fá að vera í kringum það. Aðferðir skólans við að örva skilningsvit og forvitni barnanna eru aðdáunarverðar og dugnaður starfsfólks við að búa til dýrmætar upplifanir fyrir börnin er ótrúlegur.”
"Ég er einstaklega þakklát fyrir að bæði börnin mín hafa fengið að alast upp að hluta á Vinagarði. Þakklætið snýr fyrst og fremst að yndislegu starfsfólki skólans þó að öll umgjörð og aðstaða er einnig til fyrirmyndar"
#Vinagarður er einstakur leikskóli í sérlega fallegu umhverfi með frábæru starfsfólki, fullur af hlýju og ró."
Guðmundur Karl og Helga.
"Klárlega einn besti leikskólinn! Ég hef mjög mikla og góða reynslu af Vinagarði. Eldri börnin mín tvö voru á leikskólanum, dásamlegt starfsfólk alltaf brosandi, gott andrúmsloft frábært útisvæði, mín börn hlökkuðu alltaf til í að fara í leikskólann og nú þessi yngsta. Mæli 100% með Vinagarði. Þórunn Högna, Vinagarðsforeldri Frábært og fræðandi leikskólastarf með hjartahlýjum kennurum. Harpa Kára, Vinagarðsforeldri Við hjónin höfum verið svo lánsöm að hafa haft stelpurnar okkar á Vinagarði. Við höfum jafnvel lagt á okkur langan akstur daglega svo það megi verða. Starfsfólk Vinagarðs er dásamlegt og leggur sig alltaf fram um að hlúa fallega að börnunum í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur. Takk fyrir okkur 🙂

Um okkur

Leikskólastjóri er Hulda Björg Jónasdóttir og má fá allar nánari upplýsingar hjá henni í síma 553 3038. Einnig er öllum velkomið að koma í heimsókn til okkar.

Hafðu samband

Félagsgjöld eru greidd með rafrænum kröfum í netbanka en ekki með millifærslu. Hér fyrir neðan eru reikningsupplýsingar félagsins fyrir aðrar greiðslur, s.s. fjáröflun.

Kt. 470416-0170

Aðalreikningur 0526-26-470416
Söfnunarreikningur 0515-14-413502

Gjaldskrá Vinagarðs miðast við barn með lögheimili í Reykjavík og má finna á https://www.vinagardur.is/leikskolinn/gjaldskra/. Sveitarfélög greiða meginhluta kostnaðar við nám barna í Vinagarði, leikskóla KFUM og KFUK.

Úthlutun leikskólaplássa fer einkum fram á tímabilinu mars til og með júní á ári hverju. Ef nýjar umsóknir berast á meðan á vinnslu umsókna stendur geta þær þurft að bíða. Forráðamenn eru því hvattir til að sækja um leikskólapláss fyrir 1. mars þess árs sem óskað er eftir að nám hefjist. Forráðamenn fá sent boð um pláss fyrir barn sitt í Vinagarði í tölvupósti sem svara þarf innan sjö daga frá dagsetningu boðsins. Hafi ekki borist staðfesting frá forráðamönnum innan tilskilins frests fellur boð um skólagöngu niður. Forráðamenn fá tilkynningu um upphaf skólagöngu eigi síður en fjórum vikum fyrir upphaf náms.

Vinagarður, leikskóli KFUM og KFUK, áskilur sér rétt til þess að segja upp dvalarsamningi hafi greiðsla ekki borist 30 dögum frá gjalddaga. Uppsögn miðast við mánaðamót og er uppsagnarfrestur einn mánuður.